Danska útgáfa Faðirvorsins gæti tekið breytingum á næsta ári ef prufuþýðing danska biblíufélagsins vinnur hylli.Breytingarnar yrðu smávægilegar og til þess fallnar að gera faðirvorið nútímalegra. Vonin er sú að með uppfærðu Faðirvori eigi yngra fólk auðveldara með að skilja bænina.Sem dæmi tæki fyrsta línan málfarslegum breytingum.Vor Fader, du som er i himlene!verður að:Vores far, du som er i himlen!Orðið himlen er í eintölu og mun nær eðlilegri máltilfinningu flestra Dana á meðan fleirtalan himlene er hátíðlegri og finnst óvíða annars staðar en í Faðirvorinu og álíka guðfræðilegum texta. Ávarpsliðurinn Vor breytist einnig í hið síður hátíðlegra Vores.Að sama skapi segjum við Íslendingar: Faðir vor, þú sem ert á himnum og notum þar fleirtöluna. Samskonar íslensk uppfærsla og prófuð verður