Gististaðurinn Arctic Wind í Vogum þarf ekki að greiða þýskri konu 157 þúsund krónur vegna þess að hún gat ekki gist hjá þeim eftir að heitavatnslögn fór í sundur í febrúar 2024. Konan þarf hins vegar að greiða gististaðnum 834 þúsund krónur í málskostnað.Þýska konan átti bókaða gistingu í tveimur herbergjum 8.–13. febrúar 2024. Gistingin mun hafa kostað 1.092 evrur, um 150 þúsund krónur að núvirði. VOGAR HEITAVATNSLAUSIR EFTIR AÐ ELDGOS HÓFST Að morgni 8. febrúar hófst eldgos á Reykjanesskaga með þeim afleiðingum að hraunstraumur fór yfir Njarðvíkuræð sem sér íbúum á Suðurnesjum fyrir heitu vatni.Rekendur gististaðarins höfðu samband við konuna og létu hana vita af því að Vogar væru heitavatnslausir. Var henni ráðlagt að afbóka gistinguna.Konan mun hafa komið á gististaðinn sama dag og