Lögmenn þeirra sem urðu fyrir ofbeldi í vistun á vegum hins opinbera telja að fjórfalda ætti þær bætur sem lagðar eru fram í frumvarpi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um sanngirnibætur. Nauðsynlegt sé að gera umfangsmiklar breytingar á því til að endurspegla alvarleika þeirra brota sem sanngirnisbótum er ætlað að bæta.Lögmennirnir Bjarki Heiðar Bjarnason og Snorri Steinn Vidal hjá Soldium lögmannastofu fagna því í umsögn sinni að lagafrumvarp forsætisráðherra sé komið í samráðsgátt en telja að gera þurfi miklar breytingar á því. Þeir annast hagsmunagæslu fyrir hönd tuga manna sem vistaðir voru sem börn víðs vegar um landið af hinu opinbera og urðu fyrir alvarlegu ofbeldi.Frumvarpinu er ætlað að koma á varanlegu úrræði fyrir þá sem urðu sem börn fyrir illri meðferð eða ofbeldi í vi