Zelensky ánægður með gang friðarviðræðna í Abú Dabí

Öðrum degi þríhliða friðarviðræðna milli Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna í Abú Dabí er lokið. Viðræðurnar eru þær fyrstu milli þessara þriggja ríkja síðan í febrúar, þegar þeim lauk án niðurstöðu og ráðamenn í Bandaríkjunum beindu sjónum sínum í auknum mæli að Íran.Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, er ánægður með gang viðræðna og fagnar þeirri breytingu, sem erindrekar Bandaríkjanna gerðu, að bjóða Evrópuríkjum sæti við borðið.Sendinefnd Úkraínu mun ræða um það sem fram hefur komið í viðræðunum við evrópska bandamenn sína.Zelensky, sem kom til Kaupmannahafnar í gær til fundar við Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, sagði enda í viðtali við danska ríkisútvarpið í gær að hann sæi ekki fyrir sér hvernig tryggja mætti öryggi í Úkraí
Zelensky ánægður með gang friðarviðræðna í Abú Dabí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar