Gert er ráð fyrir tilraunarekstri á vindmyllum í Vaðölduveri út veturinn. Landsvirkjun segir framleiðslu undir væntingum og vísar til milds veðurs. Tíu vindmyllur af fjórtán hafa verið í gangi frá því að vindorkuverið var gangsett fyrir tæpum tveimur mánuðum.