Þónokkrir nafntogaðir þjóðarleiðtogar verða ekki viðstaddir leiðtogafund loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, í Antalíu í Tyrklandi í dag.Aðeins Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, mætir til fundarins af þjóðarleiðtogum G7-ríkja og verður þar í hópi með Lula da Silva, nýendurkjörnum forseta Brasilíu, Recep Erdogan, forseta Tyrklands, Masoud Pezeshkian, forseta Íran, Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, auk fleiri.Emmanuel Macron, forseti Frakklands, verður fjarri góðu gamni eins og Friedrich Merz Þýskalandskanslari, Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans.Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem dró þátttöku Bandaríkjanna í Parísarsamkomulaginu til baka í sinni fyrri t