Rússneskir erindrekar sögðu við viðræður í Abu Dhabi í gær að Rússar hefðu hernumið mun meira svæði en þeir hafa í rauninni gert á Donbas-svæðinu svokallaða. Rússneskir hermenn og herbloggarar hafa að undanförnu birt sífellt fleiri fölsuð myndbönd sem eiga að sanna nýja landvinninga á sama tíma og yfirlýsingum varnarmálaráðuneytis Rússlands um „frelsaðar“ byggðir í Úkraínu fækkar.