Eldur kviknaði í bíl fyrir utan leikskólann Árbæ við Fossaveg á Selfossi í morgun. Útkall barst Brunavörnum Árnessýslu rétt upp úr klukkan átta í morgun. Þetta staðfestir Lárus Kristinn Guðmundsson slökkviliðsstjóri. Búið var að slökkva eldinn að mestu þegar slökkvilið bar að. Ekki er vitað hver eldsupptök voru. Engin slys urðu á fólki. RÚV / Ragnar Visage