Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sem sinna meðgönguvernd geta loks pantað rannsóknir í eigin nafni í stað þess að skrá þær á lækna. Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir breytinguna löngu tímabæra. Með henni séu verkferlar einfaldaðir og gerðir öruggari.„Þetta er í raun og veru ekki mikil breyting á störfum ljósmæðra af því ljósmæður eru að panta allar þessar blóðprufur sjálfar, en hingað til þá hafa þær þurft að finna eitthvað læknanúmer til þess að setja á blóðprufubeiðnirnar,“ segir Unnur.„Það er miklu öruggara að þetta fari bara í vinnuhólfið hjá ljósmæðrunum í staðinn fyrir hjá einhverjum lækni sem þekkir jafnvel ekki konuna, veit ekki einu sinni að hún er ólétt og er ekki með hana í neinni meðferð. Það eru ljósmæðurnar sem eru að sinna meðferðinni.“