„Þetta er hinn fullkomni fjölskyldubíll,“ segir hann afslappaður með aðra hönd á stýri og ég reyni að kinka kolli. Það er hægara sagt en gert, með 2 kílóa hjálm á hausnum. Við brunum á 190 km hraða og hann heldur áfram að tíunda fyrir mér kosti bílsins meðan ég rígheld mér í það sem hendi er næst. Hverjum dettur í hug að kynna fjölskyldu SUV á kappakstursbraut?