Mörður Árnason, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, er látinn, 73 ára að aldri. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í gærmorgun eftir erfið veikindi undanfarna mánuði. Morgunblaðið greinir frá andlátinu. Mörður fæddist í Reykjavík 30. október 1953. Foreldrar hans voru Árni Björnsson fræðimaður og rithöfundur og Vilborg Harðardóttir, varaþingmaður og blaðamaður. Eftirlifandi eiginkona hans er Linda Vilhjálmsdóttir, sjúkraliði og skáld, og...