Barnaníðsefni hefur aldrei verið jafn útbreitt og fullorðnir karlmenn hafa greiða leið að börnum í gegnum samfélagsmiðla. Afbrotafræðingur segir markvissa, einstaklingsbundna, meðferð geta dregið úr afbrotum.Í umfjöllun Kveiks í gærkvöldi var fjallað um kynferðisbrot gegn börnum. ÓVÍST HVORT HÆGT SÉ AÐ LÆKNA FÓLK AF BARNAGIRND Helgi Gunnlaugsson, félags- og afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, segir erfitt að alhæfa um að ein meðferð virki fyrir alla kynferðisbrotamenn.Brotin séu margs konar og meðferðarúrræðin líka.Hann segir rannsóknir sýna að þegar markvissri meðferð er fléttað inn í önnur afplánunarúrræði þá dregur úr því að menn brjóti ítrekað af sér.Helgi segir að þrátt fyrir markvissa meðferð bendi rannsóknir þó til þess að óvíst sé hvort hægt sé að lækna fólk af barnagirnd.„En