Austanlands verða hvassar norðvestanáttir og gular viðvaranir í gildi vegna vinds á Austfjörðum og sunnan Vatnajökuls. Á vef Vegagerðarinnar segir að ófært sé vegna hvassviðris í Hamarsfirði og í Álftafirði.Í öðrum landshlutum er mun hægari vindur og víða bjart. Það verður þó skýjað og dálítil él norðaustanlands. Frost á bilinu 0–7 stig. Norðanáttin gengur niður í kvöld og nótt.Þetta kemur fram í pistli veðurfræðings Veðurstofu Íslands.Á morgun snýst í suðvestanátt og vestantil fer að snjóa. „Það hlýnar smám saman og úrkoman breytist í slyddu eða rigningu á láglendi síðdegis. Þurrt og kalt eystra, en dálítil snjókoma annað kvöld,“ segir í pistlinum.Veðurviðvörun er í gildi á Austurlandi vegna hvassviðris til klukkan 15 síðdegis. Á Suðausturlandi tekur hún gildi klukkan 9 og varir til klukk