Gul viðvörun er í gildi á Austfjörðum og tekur gildi á Suðausturlandi klukkan 9. Viðvörun rennur úr gildi klukkan 15 á Austfjörðum en 18 á Suðausturlandi. Spáð er norðvestan 15-23 m/s og vindhviðum sem geta orðið staðbundið yfir 35 m/s. Varað er við því að ferðast um, einkum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.