Mörður Árnason er látinn

Mörður Árnason, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, er látinn. Hann var 73 ára gamall.Morgunblaðið greinir frá andlátinu. Þar segir að Mörður hafi látist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í gærmorgun eftir erfið veikindi undanfarna mánuði.Mörður fæddist í Reykjavík 30. október 1953. Foreldrar hans eru Árni Björnsson, fræðimaður og rithöfundur, og Vilborg Harðardóttir, varaþingmaður og blaðamaður.Eftirlifandi eiginkona Marðar er Linda Vilhjálmsdóttir sjúkraliði og skáld. Dóttir hans er Ölrún Marðardóttir.Mörður lauk stúdentsprófi frá MR árið 1973 og BA-prófi í íslensku og málvísindum frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Osló 1978. Hann nam málvísindi við Sorbonne í París árin 1978–1981.Hann kom víða við á ferli sínum. Hann starfaði meðal annars hjá Orðabók Háskólans, sem blaðamaður á Þj
Mörður Árnason er látinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar