Bandaríski milljónamæringurinn T. Cullen Davis, sem var á sínum tíma sakaður um að hafa myrt 12 ára stjúpdóttur sína og elskhuga eiginkonu sinnar, er látinn, 93 ára að aldri. Davis var sýknaður af morðákærunni í einu umtalaðasta sakamáli Texas á áttunda áratug síðustu aldar.