Þrír gista fangageymslur lögreglu nú í morgunsárið vegna rannsóknar mála en alls voru sextíu mál skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan fimm síðdegis í gær og þar til klukkan fimm í morgun. Meðal annars var aðili stöðvaður fyrir sölu fíkniefna og peningaþvætti.