Hæstiréttur í eyríkinu Trínidad og Tóbagó ógilti í gær lög frá árinu 1986 sem gerðu samkynhneigð refsiverða.Dómarar voru á einu máli um að ekki væri hægt að beita lögunum til að sækja fólk til saka fyrir að eiga í kynferðislegu sambandi við fullorðna manneskju af sama kyni. Refsingin samkvæmt gömlu lögunum gat varðað allt að tveggja ára fangelsisvist fyrir „alvarlegt siðleysi“ og allt að fimm ár fyrir það sem í lögunum er kallað „kynvilla“ (e. buggery).Trínidadinn og hinsegin aðgerðarsinninn Jason Jones hefur í áratugi barist fyrir því að fá lögin ógilt.„Það sem ég ætla að gera á næstu mánuðum er að halda áfram markvissum aðgerðum í kringum það hvernig eyjar í Karíbahafinu, ekki bara Trínidad og Tóbagó, takast á við útbreidda hómófóbíu,“ sagði Jones í samtali við AFP-fréttaveituna eftir að