Eldur kom upp á hafnarsvæði Ust-Luga við Eystrasaltið eftir drónaárás frá Úkraínu. Úkraínuher hefur gert ítrekaðar árásir á höfnina en hún er mikilvægasta miðstöð olíuflutninga Rússa í vesturhluta landsins.Þá skutu loftvarnarkerfi Rússlands hundrað fjörutíu og sex dróna niður í Leníngrad-héraði en þar er Sankti Pétursborg stærsta borgin. Átján flugferðum var seinkað eða aflýst á stærsta flugvelli borgarinnar.Á meðan átökin á milli Rússlands og Úkraínu halda áfram funda samninganefndir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í þessari viku með milligöngu Bandaríkjanna.Olíuflutningaskip við landfestar í Sankti Pétursborg. Mynd úr safni.EPA / ANATOLY MALTSEV