Egypsk stjórnvöld herða aðgerðir gegn óháðum blaðamönnum

Egypski blaðamaðurinn Lina Attalah kemur fyrir dómstól í heimalandi sínu í dag en mál hennar hefur vakið hörð viðbrögð á alþjóðavettvangi.Attalah er ristjóri óháða fréttamiðilsins Mada Masr og árið 2024 var hún dæmd í eins árs fangelsi fyrir að reka fréttavef án leyfis og fyrir að birta það sem kallað var „rangar fréttir“. Það eru sakargiftir sem koma ósjaldan upp í málum óháðra blaðamanna í Egyptalandi.Dómurinn var kveðinn upp í fjarveru Attalah en hún frétti fyrst af honum í síðasta mánuði eftir að henni var sleppt úr haldi fyrir minniháttar brot í aðskildu, en svipuðu, máli. Þá var þess krafist að Mada Masr yrði lokað og Attalah sektuð um þrjár milljónir egypskra punda, eða 6,9 milljónir íslenskra króna. Nú verður fyrra mál hennar tekið upp að nýju fyrir dómstólum. SEX BLAÐAMENN HANDT
Egypsk stjórnvöld herða aðgerðir gegn óháðum blaðamönnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar