Kennedy-fjölskyldan hefur farið þess á leit við dómstóla að framkvæmd við sigurboga Donalds Trump Bandaríkjaforseta verði endanlega stöðvuð.Framkvæmdirnar, sem áttu að hefjast um þetta leyti, voru tímabundið stöðvaðar af dómstólum í lok síðustu viku vegna gagnrýni á að boginn muni brjóta gegn skipulagi og skyggja á Arlington-kirkjugarðinn. Hann er stærsti kirkjugarður hermanna í Bandaríkjunum og þar er líka gröf John F. Kennedy sem var Bandaríkjaforseti frá 1961–1963 þegar hann var ráðinn af dögum.Með Kennedy hvílir kona hans, Jaqueline Onassis Kennedy, og tvö barna þeirra. Þá eru bræður hans, Robert F. Kennedy og Edward M. Kennedy, einnig grafnir þar, en þeir áttu báðir sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings. ARC DE TRUMP Samkvæmt teikningum á sigurbogi Trumps að vera yfir 76 metra hár og