Litlar líkur eru á að Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna verði ákærður til embættismissis í bili. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings kaus að senda ályktun um ákæruna til dómsmálanefndar með 211 atkvæðum gegn 204.Það þýðir í raun að atkvæðagreiðslan sem stefnt var að á morgun, miðvikudag, er tilgangslaus en þá átti að kjósa um það hvort leggja ætti fram formlega ákæru gegn Hegseth.Tillagan var lögð fram af þingmanni Repúblikana í Kentucky, Thomas Massie. Hann var sá eini úr hópi flokkssystkina sinna sem kaus gegn því að dómsmálanefndin tæki tillöguna til meðferðar. Massie hefur verið gagnrýninn á Trump og ríkisstjórn hans en hann er brátt á leið af þingi þar sem hann tapaði í forvali flokksins í Kentucky fyrir frambjóðanda sem studdur var af Trump. SAKAÐUR UM AÐ BRJÓTA LÖG UM STRÍÐS