Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að áformað sé að opna skrifstofu í Kaupmannahöfn sem hafi umsjón með „Freyju“, nýju loftvarnarkerfi sem koma á í stað Patriot-kerfis Bandaríkjanna. Freyja er þróað í samvinnu Evrópuríkja undir forystu Úkraínumanna. Í september sagði Zelensky að kerfið yrði tilbúið til prófunar í desember.Hann segir að skrifstofan gæti opnað innan mánaðar. Starfslið skrifstofunnar yrði fjölþjóðlegt og unnið væri í samstarfi við mismunandi fyrirtæki í varnariðnaði.Þetta er meðal þess sem Zelensky ræddi á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í kvöld. Hann er í opinberri heimsókn til Danmerkur og átti fyrr í kvöld fund með þjóðarleiðtogum Norðurlandanna. Þar á meðal var Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. TÍMI TIL AÐ EVRÓPA TILNEFNI FULLTRÚA TIL FRIÐARVIÐRÆÐNA Einni