Árbæjarskóli og Langholtsskóli komust áfram í Skrekk

Annað undanúrslitakvöld Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld í beinni útsendingu á vef RÚV. Tveir skólar tryggðu sér sæti í úrslitum. Það voru Árbæjarskóli með atriðið Bestu ár ævi þinnar og Langholtsskóli með atriðið Frelsinu fögnum.Atriðið Bestu ár ævi þinnar frá Árbæjarskóla fjallaði um pressuna sem getur fylgt því að vera unglingur og tilfinninguna um að þurfa að gera allt „rétt“. Að lokum kemur í ljós að enginn er með allt á hreinu og það er engin ein rétt leið til að vera unglingur, eða þú sjálf/ur/t.Atriðið Frelsinu fögnum frá Langholtsskóla er byggt í kringum barnasáttmálann og fjallar atriðið um rödd, skoðun, frelsi, fjölbreytileika og menningu barna. Í atriðinu fá áhorfendur innsýn í hvernig fullorðnir taka börnum og þeirra skoðu
Árbæjarskóli og Langholtsskóli komust áfram í Skrekk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar