Fleiri en tvö þúsund börn hafa fengið þjónustu hjá Barnahúsi á síðustu fimm árum vegna ofbeldis. Kynferðisofbeldi færist stöðugt í aukana, sérstaklega í gegnum netið. Aðgengi að börnum hefur aldrei verið auðveldara.„Það sem er að breytast í samfélaginu er að við erum ekki bara með íslensku landamærin. Við erum líka með alla erlendu aðilana sem sækjast í börn. Þannig að í dag er það þannig að, sérstaklega á netinu, þá eru okkar börn ekkert öruggari en þau sem búa utan landamæranna,“ segir Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, í samtali við Kveik.Tæplega þrjú hundruð börn höfðu leitað til Barnahúss í lok september, frá því í janúar, vegna kynferðislegs eða líkamlegs ofbeldis. Í 64 prósentum tilvika leikur grunur á að fjölskyldumeðlimur eða annar nákominn þeim hafi brotið