Vilja auka hlutafé Bláa Lónsins hf. um 14 milljarða

Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. hófst í morgun og stendur til föstudags.Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri félagsins, segir að til standi að sækja rúmlega 14 milljarða í nýtt hlutafé.Núverandi hluthafar eru ekki að selja sína hluti heldur er verið að sækja nýtt hlutafé. Viðskipti hefjast með félagið í Kauphöllinni 20.nóvember. UMFANGSMIKIL UPPBYGGINGARVERKEFNI KALLA Á AUKIÐ FJÁRMAGN Sigríður Margrét segir ástæðu þess að boðað er til hlutafjáraukningarinnar nú vera að styrkja félagið í þeim uppbyggingarverkefnum sem séu fram undan.Í útboðinu eru hundrað og fimmtíu milljónir hluta til sölu, þar af eru 30% í A-hluta og 70% í B-hluta.Í A-hluta er fast verð á hvern hlut 95 kr. - en í B hluta er lágmarksverð á hlut 95 kr. og fjárfestir býður það hámarksverð sem hann er tilbúinn að greiða.
Vilja auka hlutafé Bláa Lónsins hf. um 14 milljarða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar