Franska lögreglan gerði húsleit á þremur stöðum sem tengjast egypska auðjöfrinum Mohamed Al Fayed vegna ásakana á hendur honum um ítrekuð kynferðisbrot gegn konum. Nokkrir voru handteknir.Leitað var á Ritz-hótelinu í París, Windsor-villu í vesturhluta Parísar og Sainte-Therese kastala á frönsku rivíeriunni um miðjan síðasta mánuð. Þessar byggingar voru allar í eigu Al Fayed. Í aðgerðunum voru nokkrir yfirheyrðir og hald var lagt á tölvur, síma og stafræn gögn. Leitin var gerð í samstarfi við bresku lögregluna.Al Fayed lést 2023, 94 ára að aldri. Hann var umsvifamikill í viðskiptum í Bretlandi og átti meðal annars hótelið Ritz, verslunarkeðjuna Harrods og knattspyrnufélagið Fulham, svo fátt eitt sé nefnt. Árið 2024 sýndi BBC heimildarmynd þar sem yfir 20 konur lýstu því yfir að hann hefði m