Handtóku bandarískan hermann grunaðan um njósnir

Breska hryðjuverkalögreglan hefur handtekið háttsettan hermann í bandaríska hernum í Gloucestershire-héraði í dag. Frá þessu greinir BBC.Hermaðurinn er 41 árs og var handtekinn nálægt borginni Gloucester grunaður um brot á lögum um þjóðaröryggi. Lögreglan í Bretlandi segist vinna náið með bandaríska hernum og bandarísku alríkislögreglunni (FBI)Lögreglan í Bretlandi sagði ásakanirnar gegn manninum tengjast Rússlandi. Bandaríska alríkislögreglan segir manninn sakaðan um njósnir. Lögreglan hefur ráðist í leitir á tveimur stöðum í Gloucestershire í þágu rannsóknarinnar.Sean Stinchon, hershöfðingi í bandaríska hernum, segir meint framferði hermannsins, sem hafi verið treyst fyrir viðkvæmum upplýsingum, áminningu um það að alvarlegar ógnir innan úr röðum hersins séu raunverulegar og viðvarandi.
Handtóku bandarískan hermann grunaðan um njósnir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar