Tafir eftir þriggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi

Einn var fluttur til skoðunar á slysadeild eftir þriggja fólksbíla árekstur á Vesturlandsvegi við Grjótháls. Slökkviliði barst tilkynning um áreksturinn rétt eftir klukkan 18 í kvöld, segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.Miklar tafir eru í austur í átt að Mosfellsbæ. Sigurjón segist búast við töfum að minnsta kosti næsta hálftímann á meðan viðbragðsaðilar hreinsa vettvanginn.Þórgunnur Oddsdóttir
Tafir eftir þriggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar