Vistmaður á geðdeild í Drammen í Noregi situr nú í gæsluvarðhaldi á annarri stofnun eftir að hann stakk annan vistmann á deildinni til bana á föstudaginn. Lögregla segir óvenjulegt að henni hafi ekki verið gert aðvart fyrr en 20 mínútum eftir atlögu mannsins.