Íslenska flugstéttafélagið (ÍFF) hefur sent kvörtun til Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, vegna tafa sem hafi orðið á afgreiðslu launakrafa fyrrverandi starfsmanna flugfélagsins Play hjá Ábyrgðasjóði launa.Play varð gjaldþrota í september á síðasta ári. Félagið segir fyrrverandi starfsmenn því hafa beðið í rúmt ár eftir afgreiðslu. Ábyrgðasjóði launa hafi borist umsagnir tveggja skiptastjóra um allar launakröfur fyrrverandi starfsmanna Play, sem eru félagsmenn ÍFF, þann 14. september í ár.Félagið vísar til laga um Ábyrgðasjóð launa og segir þar gert ráð fyrir því að sjóðurinn afgreiði kröfur að meginstefnu innan fjögurra vikna frá því umsögn skiptastjóra liggur fyrir. Miðað við móttöku uppsagnanna hafi sá frestur runnið út 12. október síðastliðinn.„Þrátt fyrir þet