Grunur um að Íslendingar borgi fyrir beint streymi af ofbeldi gegn börnum

Vísbendingar eru um að einstaklingar hér á landi hafi greitt fyrir að sjá börn beitt kynferðislegu ofbeldi í beinu streymi. Ofbeldi á netinu verður sífellt útbreiddara.Europol hefur ítrekað fjallað um þessa tegund kynferðisofbeldis gegn börnum í skýrslum sínum, sem verði sífellt víðtækara vandamál. Þar kemur fram að fólk geti greitt fyrir að fylgjast með ofbeldinu í rauntíma og geti jafnvel gefið fyrirmæli um hvers konar ofbeldi beita eigi börnin.„Þetta er bara keypt þjónusta í raun og veru. Þú ert að kaupa þjónustu þar sem verið er að níðast á barni kynferðislega. Og þú greiðir með alls konar aðferðum og reynir þá kannski að fela það. En það er í okkar hlut að rannsaka og reyna að sýna fram á að þú hafir gert það,“ segir Gunnhildur Róbertsdóttir, deildarstjóri tölvurannsóknardeildar lögre
Grunur um að Íslendingar borgi fyrir beint streymi af ofbeldi gegn börnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar