Tafir vegna skipulags- og seirumála eru helsta ástæða þess að meirihluti svínabúa á Íslandi stenst ekki núverandi reglugerð um dýravelferð. Formaður Félags svínabænda segir þungt hljóð í svínabændum vegna umræðu um aðbúnað svína, til skoðunar sé að hleypa fréttamönnum á svínabú sem sé þó afar erfitt í framkvæmd vegna smitvarna.