Kostar nærri hálfa milljón að flytja fanga frá Akureyri

Í skriflegu svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu segir að ekki sé hægt að opna fangelsið á Akureyri á nýjan leik án umfangsmikilla og kostnaðarsamra breytinga. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sagði á Alþingi í síðustu viku að þau tíu rými sem voru á Akureyri myndu nýtast vel í dag þar sem þörfin fyrir pláss í fangelsum hefur aukist verulega á undanförnum árum.Þegar fangelsinu á Akureyri var lokað árið 2020 tók Lögreglan á Akureyri rýmin yfir og nýtir þau í dag fyrir starfsemi sína.Í svarinu segir einnig að kostnaður við fangaflutninga frá Akureyri á árinu 2025 sé um tíu milljónir króna, eða 450 þúsund fyrir hvern fanga. Rekstur fangelsisins á Akureyri hafi hins vegar kostað um 100 milljónir á ári. Dómsmálaráðuneytið leggur sérstaka áherslu á færri og öf
Kostar nærri hálfa milljón að flytja fanga frá Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar