Landris heldur áfram við Svartsengi með nokkuð stöðugum hraða og þrýstingur eykst enn á kvikusöfnunarsvæðinu á nokkurra kílómetra dýpi. Ekkert bendir til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Þetta kemur fram í nýjustu stöðuuppfærslu Veðurstofu Íslands.