Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna í Svíþjóð, hefur fengið lengri frest til að mynda nýja ríkisstjórn. Upphaflega átti hann að gefa skýrslu á föstudag en Andreas Norlén, forseti þingsins, hefur nú framlengt þann frest til næsta þriðjudags.Norlén ákvað þetta eftir að hafa rætt við flokksleiðtoga. Kristersson sagði í færslu á Facebook að hann myndi áfram reyna að mynda ríkisstjórn með Kristilegum demókrötum, Miðflokknum og Frjálslynda flokknum sem nyti stuðnings meirihluta þingsins. Svíþjóðardemókratar tilkynntu um helgina að þeir myndu ekki krefjast þess að sitja í ríkisstjórn.Mörg samtöl hafa átt sér stað milli flokksleiðtoga undanfarna daga. Meðal annars er Miðflokkurinn í viðræðum bæði við Kristersson og Magdalenu Andersson, leiðtoga jafnaðarmanna. Vinstri flokkurinn, sem hefur krafis