Myndefni úr öryggismyndavélum nærri vettvangi þar sem átök brutust út í Breiðholti um þarsíðustu helgi, með þeim afleiðingum að einn lést, hefur nýst lögreglu vel við rannsókn málsins. Búið er að tryggja alla mikilvægustu rannsóknarhagsmuni málsins og því sætir sá sem grunaður er um manndráp gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna.