Eftirlýstur Serbi með annan fótinn á Íslandi í áratug

Serbneskur karlmaður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna nær tveggja áratuga gamallar írskrar handtökuskipunar hefur haft annan fótinn á Íslandi í áratug, unnið og þegið bætur.Hann framvísaði fölskum króatískum skilríkjum þegar hann kom fyrst til landsins og fékk íslenska kennitölu. Hann hefur síðan ýmist framvísað fölsku króatísku skilríkjunum eða serbneskum skilríkjum undir öðru nafni en hann var eftirlýstur undir.Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá landamæradeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir manninn hafa verið stöðvaðan við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli í lok október. Þar framvísaði hann serbneskum skilríkjum, grunur vaknaði um að hann væri hingað kominn til að vinna ólöglega og til stóð að brottvísa honum.„Svo kemur í ljós að hann virðist skráður sem
Eftirlýstur Serbi með annan fótinn á Íslandi í áratug

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar