Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir að tilraun flokksfélaga síns til að ákæra sig til embættismissis sé pólitísk sýndarmennska. Hún hafi ekkert með það að gera að láta hann sæta ábyrgð fyrir afglöp í starfi.Hegseth hefur verið undir þrýstingi að láta af embætti eftir að bæði Donald Trump forseti Bandaríkjanna og JD Vance varaforseti gáfu til kynna að slæmt tap Repúblikana í þingkosningunum í síðustu viku mætti að stórum hluta skrifa á stríðið í Íran.Thomas Massie, þingmaður Repúblíkana í Kentucky, hefur hafið undirbúning að tillögu um að Hegseth verði ákærður. Massie er mikill gagnrýnandi Trumps en er nú á leið út af þingi þar sem hann tapaði forvali Repúblikana í ríkinu fyrir frambjóðanda sem Trump studdi. SAKAÐUR UM AFTÖKU ÁN DÓMS OG LAGA Stór hluti tillögunnar fjallar