Höfundur Hniksins vill skola leðjuna úr stjórnkerfinu

„Ef Satan hefur gert mjög vonda áætlun fyrir mannkynið felur hún í sér leðju,“ segir Cass R. Sunstein, lagaprófessor við Harvard og meðhöfundur metsölubókarinnar Nudge - eða Hnik. Sunstein var m.a. ráðgjafi ríkisstjórnar Baracks Obama á sviði opinberrar stefnumótunar. Hann tekur þátt í rannsókninni VAL hjá Háskóla Íslands og var á Íslandi af því tilefni.Sunstein er í herferð gegn því sem hann kallar leðju í stjórnkerfinu.Með hniki megi hafa jákvæð áhrif á val fólks án boða og banna. Leðja geti aftur á móti staðið í vegi fyrir því að fólk komi hlutum í verk. Hún birtist meðal annars í löngum eyðublöðum og flóknum leyfisferlum, sem kosti almenning og samfélagið verðmætan tíma og peninga.Rætt var við Sunstein í Kastljósi. Horfa má á innslagið hér að ofan.
Höfundur Hniksins vill skola leðjuna úr stjórnkerfinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar