Þríhliða viðræðum Úkraínumanna, Rússa og Bandaríkjamanna um frið í Úkraínu, sem hófust í Abú Dabí í morgun. er lokið í dag. Þeim verður fram haldið á morgun.Samningamenn hafa ekkert látið uppi opinberlega um hvernig viðræðurnar ganga. Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í París, þar sem utanríkisráðherrar G7-ríkjanna eru á fundi, að viðræðurnar hefðu verið mjög árangursríkar. Hann sagði að Evrópa ætti þegar til kastanna kemur að koma að viðræðunum þar sem Evrópa væri hluti af langtímalausn stríðsins.Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu var hins vegar ekki eins bjartsýnn þegar hann var spurður út í gang viðræðna í viðtali í Kaupmannahafnarháskóla í dag.„Ég var að ræða við samningateymi okkar. Rússarnir eru erfiðir. Þeir eru ekki bestu vinir okkar,“ sagði hann.Hann sagði jafnfram