Verjandi Írisar Helgu Jónatansdóttur sagði dómara ekki mega gefa magnafslátt af sönnunarbyrði vegna fjölda ákæruliða í máli hennar. Krafðist hún sýknu í öllum ákæruliðum og sagði dóm í málinu ekki verða byggðan á getgátum, ágiskunum eða umfjöllun áhrifavalda og fjölmiðla um málið.