Telur vantraust á efnahagskerfinu geta torveldað vaxtalækkanir

Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík, segir mikið vantraust ríkjandi gagnvart efnahagskerfinu sem geti torveldað vaxtalækkanir.„Það er eins og fólk trúi því almennt ekki að verðbólga hér verði tvö og hálft prósent. Það getur orðið mjög erfitt að ná þessum væntingum niður og ef við náum þeim ekki niður getur orðið mjög erfitt að ná verðbólgumarkmiðinu,“ sagði Katrín á Morgunvaktinni á Rás 1.Katrín segir sér finnast óþægilegt að loforð matvöruverslana um að lækka eða frysta vöruverð fram að áramótum hafi ekki haldið að fullu, samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ.„Það verður að vera tiltrú og það verður að vera traust en þegar maður fær svona fréttir fer traustið aðeins á flot.“Fréttir bárust af því í gær að dagvöruvísitala Alþýð
Telur vantraust á efnahagskerfinu geta torveldað vaxtalækkanir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar