Frumvarp sem Sigurður Ingi Jóhannsson lagði fram á lokametrum síðasta kjörtímabils lagði grunninn að því fyrirkomulagi hvernig stjórn Landsvirkjunar var skipuð. Sjálfur segir Sigurður Ingi að embættismenn hafi laumað breytingunum framhjá pólitíkinni en þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir þingmanninn kasta starfsmönnum heils ráðuneytis undir rútuna til að fegra eigin hlut.Fjallað er um breytingarnar í fréttaskýringu Gímaldsins í morgun. Áður fyrr tilnefndu stjórnmálaflokkarnir fulltrúa í stjórn Landsvirkjunar en því var breytt fyrir tveimur árum þannig að nú fær ráðherra tilnefningar frá valnefnd. Þessi breyting var færð í lög í október 2024 en það frumvarp sneri fyrst og fremst að niðurlagningu Bankasýslu ríkisins.Sigurður Ingi var þá fjármálaráðherra, og raunar innviðaráðherra líka