Eftir að hafa varpað sprengjum á skóla þar sem tugir óbreyttra úkraínskra borgara höfðu komið saman til að fá mataraðstoð, vörpuðu Rússar um þriggja tonna sprengju á neðanjarðarskýli sem fólkið sem lifði fyrstu árásina af faldi sig í. Að minnsta kosti fimmtíu létu lífið í árásunum en árásin er sú mannskæðasta í Úkraínu á þessu ári.