Hafa það að atvinnu að brjóta á börnum

Fjöldi vefsíðna með barnaníðsefni á netinu þrefaldaðist á tveimur árum, á sama tíma og lögregluyfirvöld víða um heim hafa tekið niður hverja síðuna á fætur annarri. Síðurnar eru nær undantekningarlaust reknar í gróðaskyni.Bresku samtökin Internet Watch Foundation fylgjast með útbreiðslu barnaníðsefnis á netinu. Vefsíðurnar eru oftast hýstar á myrkravefnum, eða darkweb, en þar er efnið líka grófast. Þannig greindu samtökin 335 faldar síður árið 2023, ári síðar voru þær orðnar 531 og í fyrra 705, hið minnsta. Þetta þýðir 33 prósenta aukningu á milli ára.Hallur Hallsson er lögreglumaður í kynferðisbrotadeild.„Fyrir fólkið á toppnum þá snýst þetta ekki um misnotkun heldur um peninga. Það eru fáránlega miklir peningar og allt sem færir því nýtt efni, það færir því meiri pening. Þannig að yfirle
Hafa það að atvinnu að brjóta á börnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar