Karlmaður situr í gæsluvarðhaldi grunaður um fjölda brota, þar á meðal sex líkamsárásir, á þessu ári. Hann var handtekinn grunaður um að hafa, í samfloti við þrjá aðra, rænt dreng í Reykjavík í síðustu viku.Þeir eru taldir hafa ógnað honum með bæði byssu og hnífi, slegið hann, tekið af honum farsímann og látið hann millifæra á þá fé.Auk þessa máls er maðurinn með 14 opin mál í kerfum lögreglu, öll frá því á þessu ári. Þeirra á meðal eru sex líkamsárásir, þar af fimm stórfelldar, og þrjú rán.Hann er auk þeirra brota grunaður um vopnalagabrot, valdstjórnarbrot, fíkniefnalagabrot, frelsissviptingu, fjárkúgun, þjófnað, hótanir, tilraun til húsbrots og eignaspjöll.Þá er hann grunaður um að hafa haft stera í vörslu sinni. Málin sem eru til meðferðar hjá lögreglu 1. janúar. Stórfelld líkamsárás.