Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir aðstæður svína sem sáust á myndskeiði frá innbroti í svínabú Stjörnugríss hafa vakið óhug.„Sem íbúi þessa lands þá brá mér, þetta er óhuggulegt að sjá. Og auðvitað sem ráðherra málaflokksins er ég að velta fyrir mér hvað sé til úrbóta, hvað er hægt að gera,“ segir Hanna Katrín.„Matvælastofnun er með þetta til rannsóknar núna og ef sú rannsókn leiðir í ljós að lög um velferð hafi verið brotin hefur stofnunin víðtækar heimildir til að bregðast við því.“Atvinnuvegaráðherra segir myndband frá innbroti í Stjörnugrís hafa vakið hjá sér óhug. Hún segir aðstæðurnar frávik en komi í ljós að lög hafi verið brotin verði við því brugðist.Hanna Katrín segir ráðuneytið fylgjast með framvindu málsins. Þá vill hún taka fram að á þingmálaskrá sé frumvarp u