Bandaríska alríkislögreglan FBI rannsakar grun um manndráp um borð í stóru skemmtiferðaskipi sem þurfti að snúa aftur til hafnar í Galveston í Texas eftir alvarlegt atvik um borð. Einn einstaklingur hefur verið handtekinn vegna málsins.Fréttastofa AP greinir frá þessu.