Rannsakendur hafa fundið flugrita einkaþotunnar sem brotlenti í Palm Beach í Bandaríkjunum í síðustu viku. Reynist hægt að hlusta á upptökur úr honum gæti hann varpað ljósi á hvað olli því að flugvélin féll nánast lóðrétt til jarðar en níu manns létu lífið í slysinu.